Annarsflokks tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2024
Verkefnið Annarsflokks eftir Stúdíó Erindreka og Sigmund Pál Freysteinsson er tilnefnt sem verk ársins á Hönnunarverðlaununum 2024. Verðlaunin fara fram 7. nóvember.
Rökstuðningur dómnefndar
Í rannsóknarverkefninu Annarsflokks er varpað ljósi á hvernig betur má nýta afgangsafurðir úr íslensku æðarvarpi. Verkefnið snýr annarsvegar að þekkingaröflun um fullvinnslu á hráefni úr hreiðri í fullunna vöru, og hinsvegar að því að miðla þekkingu á ferlinu til almennings.
Útkoman er framúrskarandi góð. Verkefnið hefur getið af sér frumgerðir að útivistarflíkum sem bera með sér sígildan brag og eru framleiddar hér á landi úr annars flokks æðardúni og vatns- og vindheldri bómull. Um 90% af æðardúni sem framleiddur er árlega á heimsvísu kemur frá Íslandi og hérlendis er því dýrmæt sérþekking til staðar þegar kemur að æðarrækt. Vöruþróun á þessu sviði hefur þó verði takmörkuð og mikill hluti æðardúns er seldur úr landi sem óunnin hrávara.
Annarsflokks æðardúnn sem inniheldur örður af plöntutrefjum er hlýr, léttur og einangrandi á sama hátt og sá dúnn sem settur er í fyrsta flokk. Með verkefninu hefur náðst að sýna fram á að hægt er að fullnýta nær allan dún. Hráefni, sem hingað til hefur verið flokkað sem annarsflokks, hefur verið fundið gott hlutverk og með verkefninu er því miðlað til almennings hve mikilvægt það er að betri nýting sé tekin alvarlega.
Á sýningu hönnuðanna í Ásmundarsal á HönnunarMars 2024 kom vel í ljós þekking þeirra og virðing fyrir viðfangsefninu þar sem bent var á notagildi og gæði annars flokks æðardúns með aðgengilegum og skapandi hætti.
Um:
Stúdíó Erindrekar er hönnunardúó sem samanstendur af vöruhönnuðunum og æðarbændunum Írisi Indriðadóttur og Signýju Jónsdóttur. Þær vinna í nánu samstarfi með fatahönnuðinum og textílsérfræðingnum Sigmundi Páli Freysteinssyni að staðbundni framleiðslu og þróun fatnaðar með áður ónýttum æðardún.
Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fer fram í Grósku þann 7. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Fylgstu með næstu daga er við tilkynnum tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2024.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Verðlaunaflokkum var fjölgað í þrjá í fyrra undir heitunum Verk // Staður // Vara.
Dómnefnd tilnefnir þrjú verkefni í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2024 sem eru hvor tveggja heiðurs- og peningaverðlaun. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu, Samtök iðnaðarins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Vísindagarða Háskóla Íslands og Grósku.