
Ákvarðanir aðalfundar Arkitektafélags Íslands
Nýr formaður var kosinn, þá var ný stefna félagsins einnig samþykkt
28. mars 2025

Hraun sem endurnýtanlegt byggingarefni í aðalhlutverki í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr
Það styttist í opnun íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr þar sem sýningin Lavaforming eftir s.ap arkitekta tekur sviðið með Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt og listrænan stjórnanda í fararbroddi. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs kynnti í dag frekari upplýsingar um sýninguna og teymið á bak við hana en búist er við að þó nokkur fjöldi íslendinga verði viðstaddur opnunina í byrjun maí.
26. mars 2025

Léttari í spori - málþing um vistvænni byggingariðnað
Málþing um vistvænni byggingariðnað á Hönnunarmars - málþingið verður á ensku
21. mars 2025


Þriðjudagsfyrirlestur AÍ: Innivist í byggingum
Dr. Ásta Logadóttir og Arnheiður Bjarnadóttir munu kynna innivist í byggingum, hvað það þýðir og hvaða áhrif innivist hefur á notendur bygginganna.
19. mars 2025

Andlát: Björn Stefán Hallsson, arkitekt, er látinn
Björn lauk arkitektanámi frá Leicester Polytechnic School of Arcitecture á Englandi árið 1978.
13. mars 2025

Hádegishittingur með hönnuðinum Unu Maríu Magnúsdóttur á Hönnunarsafni Íslands
Hönnunarsafn Íslands stendur fyrir hádegishittingi með hönnuði einu sinni í mánuði og á miðvikudaginn 12. mars kl. 12.15 mun Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður deila reynslu sinni af því að fara í gegnum ævistarf grafíska hönnuðarins Gísla B. Björnssonar.
11. mars 2025

Minningarsjóður Svavars Péturs Eysteinssonar opnar fyrir umsóknir í annað sinn
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Svavars Péturs Eysteinssonar og er þetta í annað sinn sem veittur verður styrkur úr sjóðnum. Tekið verður við umsóknum til 31. mars. Einni milljón króna verður veitt til eins verkefnis á afmælisdegi Svavars Péturs, 26. apríl og er allt skapandi fólk með skemmtilegar hugmyndir hvatt til að sækja um.
11. mars 2025

Fjölmennt og góðmennt var á fyrri úthlutun Hönnunarsjóðs í Grósku
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávarpaði hópinn og úthlutaði styrkjum ásamt Guðrúnu Ingu Ingólfsdóttur, formanni stjórnar Hönnunarsjóðs.
11. mars 2025

Nordic Office of Architecture leitar að arkitekt eða byggingarfræðingi
Framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni. Við leitum að arkitektum og byggingafræðingum með reynslu til að sinna skapandi verkefnum á skrifstofum okkar í Reykjavík eða á Akureyri.
11. mars 2025

Fyrirlestur um Vík Prjónsdóttur í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi
Nú eru 20 ár frá því að Vík Prjónsdóttir kynnti sína fyrstu vörulínu. Hönnuðurnir Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir munu halda fyrirlestur um verkefnið í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þriðjudagskvöldið 11. mars, klukkan 20:00.
10. mars 2025

Arkitektafélag Íslands mótmælir fyrirkomulagi við forval um nýja byggingu Tækniskólans
Á vegum Skólastrætis Tækniskólans ehf. er óskað eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á hönnun nýs húsnæðis Tækniskólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Um er að ræða fullnaðarhönnun; arkitekta-, verkfræði- og lóðarhönnun.
10. mars 2025

Svífandi stígar og samstarf Þykjó og Gagarín hljóta hæstu styrki Hönnunarsjóðs
27 fjölbreytt verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs hlutu styrki Hönnunarsjóðs í fyrri úthlutun ársins sem fór fram í Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í Grósku þann 4. mars þar sem 38 milljónir voru til úthlutunar. Alls bárust 122 umsóknir um almenna styrki þar sem sótt var um tæpar 355 milljónir og 48 umsóknir bárums um ferðastyrki.
5. mars 2025

FÍT verðlaunin 2025 – Verðlaunahafar
Hlutverk FÍT verðlaunanna er að viðurkenna þau verk sem skara fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum ár hvert. Alls 41 gull- og silfurverðlaun voru veitt á verðlaunahátíðinni sem haldin var í Grósku í kvöld, föstudaginn 28. febrúar 2025.
28. febrúar 2025

Má bjóða þér að Uppsprettunni? Kynntu þér dagskrá DesignTalks 2025
Dagurinn verður þéttofinn samtölum, sjónrænu og annarri örvun og lýkur með samtali í Eyri, þar sem fyrirlesarar og gestir leiðast um lendur óþrjótandi uppsprettu innblásturs og hugmynda.
28. febrúar 2025
Leiðsögn um íslenska byggingarlist
Nú eru fáanleg á ný þó nokkur eintök af verkinu Leiðsögn um íslenska byggingarlist sem Arkitektafélag Íslands gaf út árið 2000
27. febrúar 2025

Síðasti séns! umsóknarfrestur á HönnunarMarkað framlengdur til 28 febrúar
Umsóknarfrestur hönnuða á HönnunarMarkað HönnunarMars 2025 verður framlengdur til miðnættis föstudaginn 28 febrúar.
26. febrúar 2025

Opið fyrir umsóknir í Barnamenningarsjóð
Sjóðurinn styður við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Umsóknarfrestur rennur út 4. apríl 2025 kl. 15.00.
26. febrúar 2025

Aðalfundur Arkitektafélags Íslands miðvikudaginn 26. mars
Aðalfundi Arkitektafélags Íslands sem halda átti miðvikudaginn 26. febrúar hefur verið frestað til miðvikudagsins 26. mars 2025
25. febrúar 2025

Fyrirlestur með Ýrúrarí í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi
Ýr Jóhannsdóttir - Ýrúrarí mun kynna verk sín og listsköpun í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi, þriðjudaginn 25. febrúar kl: 20:00.
24. febrúar 2025